Er kominn tími til að taka skrefið í átt að lífi fylltu ástríðu og tilgangi?
Constantly stirring the water doesn’t make it go clear.
Let it settle and you will see right through it.
-Mahan Rishi Singh Khalsa
Ég heiti Vala og er viðurkenndur Adult Chair® markþjálfi og lærður jógakennari. Það hefur gengið á ýmsu hjá mér eins og eflaust okkur flestum. Ég hef m.a. fengið brjóstakrabbamein og farið í efnaskiptaaðgerð við offitu. Ég er hér til að hjálpa þér í þínu ferðalagi frá tómleikatilfinningu og neikvæðu mynstri í átt að ró, sjálfsást og sjálfsvirðingu. Þú munt læra að finna þínar sönnu tilfinningar og rödd.
Með öflugum og einföldum verkfærum getur þú lært að taka næstu skref og lifa kraftmiklu lífi fylltu ástríðu og tilgangi.
Hæ!
The Adult Chair® aðferðin veitir þér verkfæri sem hjálpa þér að öðlast styrk og sjálfstraust auk vegvísis að þínu heilbrigðasta sanna sjálfi.
Með The Adult Chair® aðferðinni munt þú skilja hvernig öll þín lífsreynsla hefur mótað manneskjuna sem þú ert í dag, læra að gefa mismunandi þáttum innra með þér rödd, öðlast dýpri sjálfsvitund og bregðast við lífinu á heilbrigðan hátt.
The Adult Chair® er leiðarvísir fyrir líf þitt.
Ég býð upp á 50 mínútna tíma í öðruvísi markþjálfun, í gegnum netið
eða í eigin persónu í Reykjavík og Eugene, OR, Bandaríkjunum.
Ég deili tíma mínum á milli þessara tveggja landa. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar.
1-2-3
Fílar þú tilboð? Af hverju skellirðu þér þá ekki á þriggja tíma dílinn? Hægt er að nýta tilboðið fyrir tíma á netinu eða í eigin persónu.
Díll!
Það er engin ástæða til að bíða lengur, saman skulum við finna bestu útgáfuna af þér!
Bókaðu 20 mínútna fría ráðgjöf
Viltu vita meira? Bókaðu 20 mínútna fría ráðgjöf til að sjá hvort öðruvísi markþjálfun sé rétta skrefið fyrir þig.